Húnvetningur - 01.06.1944, Blaðsíða 5
HÚN VETNIN GUR
5
Nú hefir Jón S. Baldurs orðið við tilmæl-
um þeim, er áður getur og legg ég hérmeð
fram umsókn hans um framkvæmda-
stjórastarfið ásamt útdrætti úr fundargerð
stjórnarinnar snertandi þetta mál.
Samkvæmt dagskrá fundarins liggur fyr-
ir tillaga frá stjórninni eða meiri hluta
hennar, að fundurinn ráði nefndan Jón S.
Baldurs, sem framkvæmdastjóra og eðli-
lega feli stjórninni að ganga nánar frá
samningum við hann. Væntum við heilla-
vænlegrar afgreiðslu á þessu máli af fund-
arins hendi“
Kaupfélagsstjóraskiptin.
Það var stefna hinnar nýju stjórnar
frá því fyrsta, að skilja sem bezt við
fyrverandi kaupfélagsstjóra Pétur Theó-
dórs og bauð stjórnin honum því
strax að afloknum aðalfundi að starfa
hjá félaginu við reikningsuppgerð þar til
ársreikningar væru að fullu gerðir, enda
mun flestum kaupfélagsstjóraskiptum
þannig hagað. Kaupfélagsstjórinn synjaði
þessu tilboði með bréfi dags. 16. sept. f. á.
og fór um leið fram á að vera laus frá
störfum við félagið 10. des. síðastliðinn.
Stjórn félagsins taldi að það mundi
verða kaupfélaginu til nokkurs aukins
kostnaðar og lagði því að kaupfélags-
stjóranum, að starfa til nýárs eins og hon-
um að líkum bar. En hann hélt fast við
kröfu sína um að losna 10. des.
Stjórnin vildi ekki gera slíkt að kapps-
máli, og varð við óskum kaupfélagsstjór-
ans. En þar sem Jón Baldurs var ráðinn
frá áramótum og bundinn við annað starf
til þess tíma, þá fól stjórnin formanni
framkvæmdastjórastarfið frá 10. des.
þangað til Jón S. Baldurs tæki við og þá
um leið að taka við verzluninni og vera
við talningu. Samþykkti Jón Baldurs þetta
fyrir sitt leyti.
S. í. S. sendi hinn prýðilega endurskoð-
anda sinn, Benedikt Jónsson, til að vera
við vörutalningu og afhendingu, og er
stjórnin mjög þakklát fyrir þá miklu og
góðu aðstoð.
Stjórninni þótti ekki annað hlýða en
að kveðja fyrrv. kaupfélagsstjóra fyrir fé-
lagsins hönd og þakka honum störf hans.
Starfstími hans hjá félaginu var um 33
ár. Hélt stjórnin honum því kveðjusamsæti
og færði honum málverk að gjöf.
Breytingar á starfssamningi við kaupfé-
Iagsstjóraskiptin.
Við vörutalningu kom það í ljós, að ó-
eðlilega mikið var af skemmdum, göml-
um vörum í birgðunum og nýrri vörur
nokkuð gallaðar, og stöfuðu skemmdir oft
af músagangi. Að því er virðist getur
starfssamningur fyrv. kaupfélagsstjóra að
nokkru hafa stutt að þessu. í honum var
ákveðið visst % gjald til að mæta vöru-
rýrnun, sem stafaði af því að vörur töp-
uðust alveg, og af sundurvigtun en ekki
vöruskemmdum. Slíkir samningar hafa yf-
irleitt reynzt illa og eru að ýmsu við-
sjárverðir. Sérstaklega er þessi ábyrgð lít-
il trygging, þegar engin ábyrgð er fyrir
vöruskemmdum. Ef ábyrgð fylgdi vöru-
rheðferð kaupfélagsstjóra, þá lægi bein-
•ast við, að hann væri ábyrgur fyrir því ef
vörur skemmdust af vanhiröu, enda náði
ábyrgðin fyrr á árum að minnsta kosti til
þessa liðs einnig.
Eitt af því, sem gerir fyrnefnda ábyrgð
óeðlilega, er það, að kaupfélagsstjórinn
ræður ekki starfsfólkið heldur stjórnin.
Ennfremur kom það fram í reiknings-
skilum fyrrverandi kaupfélagsstjóra, að
hann færði sér til tekna vangoldið frá fé-
laginu fyrir vöruábyrgð á liðnum árum,
um kr. 8000,00 — og fyrir síðastliðið ár
um kr. 4500,00.
Stjórnin var því sammála um að þetta
fyrirkomulag við ráðningu kaupfélags-
stjórans væri ekki heppilegt fyrir kaup-
félagið, og varð það því að samkomulagi
við núverandi kaupfélagsstjóra, að ábyrgð